VILTU STYRKJA FÍLALAG?
Við erum búnir að stofna Patreon síðu þar sem þið getið tekið þátt í að fjármagna þættina. Við þurfum að borga fyrir hýsingu og lénið og eitthvað svona sjitt og það safnast saman þannig að það væri geggjað að fá smá hjálp frá Hjörðinni með það. Þið s.s. gerist áskrifendur á þessari Patreon síðu okkar og styrkið okkur um einhverja dollara á mánuði, lágmark $1 en það má vera meira ef þið eruð einstaklega fílunarþyrst.
Velkomin í veisluna
Kettir allra landsmanna sameinist, bröndóttir, gráir, möndlueygðir. Það er komið að Fílalag tveir komma núll. Endurræsing. Ný heimasíða, nýir styrktaraðilar á leiðinni, ný iTunes rás. Allt galleríið.
Hér má nostra…
Þunnur kelti á gjörir þakkir
White man overbite per minute. Van The Man er óumdeilanlegur heimsmeistari í því.
Að maður sem lítur út eins og einhver sem manni kæmi ekkert á óvart að mæta í Öskjuhlíðinni í rykfrakka að banka einn út geti skilað svona…
Þegar Prellinn sarð sal
Af hverju er Tupelodrullan kallaður konungur rokksins?
Exhibit A: Þegar Prellinn sarð sal.
Sjáiði skepnuna. Þetta er vorið 70 í Vegas. Þarna er dýrið að ljúka við fyrsta veturinn af sjóvunum sínum í Vegas. Þetta er sirka…
Flugvirkinn sem varð að soultrúbador í The Big Black Smoke
Bill Withers og co. í London ’72 í Old Grey Whistle Test. Setjum okkur aðeins í þeirra spor. Þeir, eins og langflestir ameríkanar þá (og nú) hafa sjaldan eða aldrei ferðast út fyrir BNA. Þarna eru þeir komnir í The Big Black…
Carreysullið
Hér gefur að líta eina skærustu stjörnu Kanada, Jim Carrey, gera grín að annarri kanadískri stjörnu (sem skein að vísu ekki mjög lengi), Snow.
Grín Carreys er basic spoof á lagið Informer, sem var eitt vinsælasta lag ársins…
Havel og The Glimmer Twins
Sjáið þessa mynd. Þetta er örugglega eina myndin sem er til af Mick og Keith þar sem þeir eru starstruck. Ekki vegna þess að þeir eru að hitta Berry-inn sinn eða The Queen of England. Nei nei. Það er Václav Havel sem out-swagar…
Drottning sálar í Amsterdam
Drottning Sálarinnar matreiddi finger-lickin' good cajun KÁSSU úr hráefni frá færibanda-hitmaking neglumeistarann Carol King haustið '67. Gjörvöll heimsbyggðin lá í valnum með kjötsvima á toxic leveli, búin að losa um beltið…
In The Court Of The Crimson King - Stærsta lag allra tíma
Fílalag dregur nú fram eina af sínum mikilvægustu fílunum. Í dag heyrum við fílun á lagi sem breytti sögunni. Ekki bara tónlistarsögunni heldur veraldarsögunni.
King Crimson var ein af fyrstu „prog“ hljómsveitunum. Þetta…
The Killing Moon - Undir drápsmána
Echo and the Bunnymen voru mjóir nýbylgjurokkarar frá Liverpool. Ræfilslegir en hrokafullir töffarar í leðurjökkum með sólgleraugu og sígarettur.
Er til eitthvað dásamlegra?
Eitt þeirra frægasta lag er í fílað í dag,…
Aldrei fór ég suður - Kóngurinn kortlagður
Fílalag heldur áfram poppgreiningum sínum og stingur nú heygöfflum sínum í einn stærsta binginn í hlöðunni.
Bubbi Morthens er fílaður í dag. Hann er fílaður í öllum sínum litbrigðum. Hann er fílaður í bleiku, brúnu…
Born Slippy .NUXX - Smyrjið glow-stick kvoðu á heilann
Takið fram glowstick vörur. Litið líkama ykkar í neonlitum. Setjið á ykkur ljótan veiðihatt. Klæðist peysu. Hringið í versta fólk sem þið þekkið.
Takið svo heilann úr höfði ykkar og setjið ofan í Kitchen Aid blandara.…
A Case Of You - Gúmmítöffarar þagna
Joni Mitchell er ein af stóru stjörnunum á himinhvolfinu. Tónlistarkonan sem listamenn eins og Bob Dylan og Prince grétu sig í svefn yfir. Hæfileikar hennar eru svo óumdeildir að það er engin ástæða til að gera þeim neitt frekari…
Dirt Off Your Shoulder - Dustið ryk af öxlum yðar
Fílalag fer út fyrir þægindasviði í dag og fjallar um rapp í fyrsta skipti.
Viðfangsefnið er að sjálfsögðu nasavængja-meistarinn Jay-Z.
Ákveðið var að fara inn í miðju hans farsæla ferils og fíla Dirt off My Shoulder…
Riders On The Storm - Baðkarið – Blessunin – Smurningin
Í þessum þætti Fílalags verður fjallað um einhvern bragðmesta og klístrugasta súputening rokksögunnar. Hljómsveitina Doors.
Þar fór saman ljóðasköddun, djassgeggjun ásamt vænum skammti af blús, bæði í tónfræðilegum…
Eternal Flame - Að eilífu, kraft-snerill
Fílalag grefur í Fílabeinskistuna á þessum föstudegi og töfrar fram umfjöllun sína um eitt stærsta lag ársins 1989. Stúlknasveitin Bangles með kraftballöðurýtinginn Eternal Flame.
Ef þið hafið ekki heyrt þennan þátt…
Live Forever - Brekkusöngur alheimsins
„Hann kom, sá og sigraði“ var sagt um Sesar. Um Oasis er óþarfi að nota þrjú orð. Þeir komu hvorki né sáu, þeir sigruðu bara. Þeir voru alltaf þarna, Manchester ræflar með kjaft.
Það gerðist ekkert fyrir þá eftir…
Dream On (Gestófíll: Árni Vil) - 18 tommu munnur
Aerosmith er tekið fyrir í nýjasta þætti Fílalags. Þar er fjallað um kjaftana, leðrið, hattana og músíkina.
Sérstakur gestófíll er Árni Vilhjálmsson, sem flaug alla leið frá Reykjavík til Toronto fyrir þessa 28 mínútna…
Guiding Light - Ómenguð rockabilly þráhyggja
Hvað gera Bandaríkjamenn ef að bíll selst vel? Þeir framleiða meira af honum? Hvað þýðir að framleiða meira af honum? Framleiða fleiri eintök en líka að láta vera meira í hverju eintaki.
Stærri vél, fleiri hestöfl, fleiri…
Angie í Brussel ’73 - Besti flutningur allra tíma
Fílalagsmenn eru engir sérstakir tónleikaupptökuperrar. Yfirleitt eru tónleikaplötur hundleiðinlegar svo það sé sagt hreint út. En stundum eru tónleikaupptökur miklu betri en orginallinn. Það á við hérna hjá Stónsurunum.