Bergur Ebbi er rithöfundur, ljóðskáld og ritgerðarsmiður, með fjölþættan bakgrunn úr heimi lista, viðskipta og blaðamennsku. Meðal umfjöllunarefna í verkum Bergs Ebba er tæknisaga og áhrif hennar á sjálfsmynd fólks, stjórnmál, valdajafnvægi, breytt heimsmynd, tíska og tíðarandi. Bergur Ebbi er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með MDes gráðu í Strategic Foresight and Innovation frá OCAD Háskólanum í Toronto í Kanada auk þess að leggja stund á lögfræði og listasögu við Université de Cergy Pontoise í París. Tónlist: Sprengjuhöllin. Myndlist: Trevor M.B. Frá febrúar 2018 gengur Bergur Ebbi undir nafninu Appelsínugul Stormviðvörun.