Betri tíð – Listin að lifa í stuði

Stuðmenn – Betri tíð

Kýrnar leika við kvurn sinn fíngur. Ananas-hlunkum sturtað niður úr flugvél sem stýrt er af flugkappa í terlin-buxum. Laugardalslaug fyllt lakkrís-konfekti. Í stúkunni hvítir komma-kroppar. Í kvöld förum við á fílum til Skatmandú. Nepjan. Norpið. Puðið. Stuðið. Hor í nös, allar bragðtegundir regnbogans. Fuglinn sýngur. Sumarið er komið. Svona á það að vera.

Fílalag
Fílalag
Betri tíð - Listin að lifa í stuði
Loading
/