DARE – Stafrænt camouflage 

Gorillaz ft. Shaun Ryder – DARE

Alþjóðavæðing. Nótt. Flókið. Casio hljómborð. Þreyttur um kvöld. Teikna. Heimurinn er án hjarta en það má spartsla upp í holur hér og þar. Það má glærlakka yfir óskapnaðinn og gefa stílleysinu hjúp kúls.

Það eru bara til þrír til fjórir persónuleikar. Við höldum að við séum allskonar en þegar við eldumst bráðnum við saman í nokkrar manngerðir. Þegar við erum ung höldum við að heimurinn sé fjölbreyttur. Það er rokk og það er reif og það er rosalegt æði. Það er djæv sem á eftir að dýfa sér ofan í, barokk, rokókó, djass og fokk. En þetta er tálsýn. Þetta er bara ein stór súpa. Hún sýður, hún sýður, hún sýður, svo sýður hún uppúr it’s there.

Fílalag
Fílalag
DARE - Stafrænt camouflage 
Loading
/