Brimful of Asha – Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi

Cornershop og Norman Cook – Brimful of Asha

Rómúlus og Remus totta spena. Fjörutíu og fimm snúningar á mínútu. Níl flæðir yfir bakka sína. Villigöltur hleypur í skjól. Hlöður fyllast. Sósan flæðir.

Tuttugu og níu ára grafískur hönnuður hálsbrýtur sig í stiga. Rjóminn flæðir. Varir brosa, mjaðmir dilla, froðu fleytt af glasabarmi.

Spilakassar syngja. Smálán streyma. Lítið barn dregur andlit sitt úr drullupolli og hleypur heim til ömmu. Karrí, kássa, kossar. Kærleikurinn er endalaus.

Hring eftir hring, í gleði, í dansi, í söng. Allir þurfa að barma sér í barmi, sofa, sefjast í sælu og vakna aftur, fjörutíu og fimm sinnum á mínútu, endalaust, núna og alltaf.

Fílalag
Fílalag
Brimful of Asha - Barmur plús harmur deilt með takmarkaleysi
Loading
/