Geislinn í vatninu – Seiglan og lopinn

Hjálmar – Geislinn í vatninu

Á borðið er lagður pottréttur, pottþéttur og piparlagður. Flúðasveppirnir löngu orðnir hluti af sósunni. Hvaðan kom þessi brögðótta en samt basic himnasending? Stundum er stöðum líst þannig að Guð hafi yfirgefið þá. “God forsaken” nefnist þetta á ensku. Sama hvað má segja um Ísland væri líklega aldrei rétt að segja nákvæmlega þetta. Það er alltaf einhver von, einhver lopi sem má teygja, þunnt skegg sem hringast í hafursstíl af höku og heldur í okkur lífinu. Líkt og silfurbergið úr Helgustaðanámu má grafa hér margt úr jörðu sem fleytir andanum áfram.

Við tökum fyrir eina bestu hljómsveit Íslandssögunnar: Hjálma. Þar er sálin, súldin og sólin. Því hún er hérna líka, þó hún þurfi stundum að teygja sig langt.

Fílalag
Fílalag
Geislinn í vatninu - Seiglan og lopinn
Loading
/